Lífið í Ástralíu

Þetta blogg lýsir lífi mínu frá því ég flutti til Ástralíu í mars 2005. Ég hef búið í Cobar í NSW, Cairns í QLD og nú í Mt Gambier SA. Á þessum tíma hef ég líka eignast börnin mín, Arinze og Rósu.

fimmtudagur, júlí 24, 2008

 
Ég þakka fyrir afmæliskveðjur hér, á facebook og í sms-i sem vakti mig klukkan fjögur um nótt.

Smá barnafréttablogg í tilefni af því að frumburðurinn verður tveggja og hálfs á laugardaginn en það er náttúrulega stórviðburður. Reyndar mun ég halda upp á "afmælið" í skólanum og væntanlega að gera verkefni langt fram á kvöld. Næst síðasti kúrsinn er að hefjast núna um helgina.

Arinze fékk gúmmístígvél í gær. Þetta eru þau fyrstu sem hann fær og eru með Thomas the tank engine sem er í miklu uppáhaldi. Stígvélin bætast í annars stórt safn hluta merktum Thomasi, t.a.m. á Arinze hatt, nestistösku, bakpoka, tvær leikfangalestir, náttföt, peysu, nærbuxur, vegglímmiða og DVD og eitthvað sem ég hlýt að vera að gleyma. Stígvélin voru svo vinsæl að þegar ég þurfti að skipta um buxur á honum vegna smá leka þá mátti ég gjöra svo vel að gera það yfir stígvélin. Á myndinni hér að neðan er drengurinn einmitt í þessum forláta Thomas stígvélum við Thomas náttfötin sín. Stíll á mínum manni. Sem minnir mig á það að þessa dagana má alls ekki blanda saman mismunandi náttfötum. Neibb, ef það eru bláu buxurnar þá verður það að vera bláa náttpeysan við þó hún sé blaut úti á snúru. Ef ekki þá finnum við önnur náttföt. Hvað verður það næst, ætli ég þurfi að fara að strauja fyrir snyrtipinnann?

Nú er hann orðinn bleyjulaus og gengur það svona líka vel. Þegar meira stendur til þá er reyndar beðið um bleyju en það fer að koma.

Í síðustu viku fórum við á hið árlega Cairns show bara mæðginin með vinkonum okkar. Þar dró Arinze mig í Jumbo slide sem er nákvæmlega eins og á þessari mynd. Ég pissaði næstum á mig úr hræðslu þegar við komum upp í fyrsta sinn. Ó mæ god, ég er frekar lofthrædd og var ekki viss um að þetta væri nú góð hugmynd með svona pínu ponsu lítinn strák. Arinze leit niður fyrir sig eins og sá sem hefur ekki vit á því að vera skelfingu lostinn. Svo flugum við niður og móðirin öskraði uppyfir sig og hræddi soninn örlítið. Þegar niður var komið tók Arinze svo stefnuna beint aftur á stigann og klifraði upp alla leið alveg sjálfur aftur. Og í þriðja sinn. Í seinni tvö skiptin þá hélt ég í mér andanum þar sem rassinn hætti að snerta rennibrautina svo ég myndi ekki öskra og við skemmtum okkur konunglega.
Rósa er 8 mánaða núna og þvílíka pæjan. Hún er að reyna að gera allt núna. Hún reynir að skríða á fjórum (fer bara um á maganum), setjast upp, standa upp í rúminu og svo getur hún labbað nokkur skref með gulu göngugrindina á myndina. Þessa gamaldags í bakgrunninum notar hún til að komast hvert sem hún vill, hvort sem það er til að geta borðað klósettpappír inní á klói eða til að ná í tepoka til að japla á þangað til telauf fylla munninn. Já hún Rósa mín er öðruvísi en Arinze sem aldrei kemur sér í klípu. Mig grunar að það verði meira fyrir henni haft þegar hún kemst á fulla ferð.

Comments:
Hæ! Frábært að geta fylgst með ykkur sem eruð svona langt í burtu - ég er stödd í Sönderborg hjá Helgu og Palla - fer heim 31. Gaman að sjá myndir af börnunum þínum þau eru greinilega mjög efnileg. Hafið það sem allrabest - kveðja Ása Ólafs.
 
Sæl Þórhildur
Heyrðu hann Thomas er kallaður Tommi togvagn á íslenskunni og hér hafa verið gefnar út bækur um þennan merkilega vagn. Annars allt gott að frétta frá mér.
Habbý frænka
 
Skrifa ummæli

<< Home
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?