Lífið í Ástralíu

Þetta blogg lýsir lífi mínu frá því ég flutti til Ástralíu í mars 2005. Ég hef búið í Cobar í NSW, Cairns í QLD og nú í Mt Gambier SA. Á þessum tíma hef ég líka eignast börnin mín, Arinze og Rósu.

föstudagur, júní 13, 2008

 
Yfirleitt les ég ástralskar fréttir fyrst á íslenskum netmiðlum. Latir netblaðamenn á Íslandi hljóta að vera í áskrift hjá þeim áströlsku. Þeir hafa hins vegar misst af eftirfarandi sögu sem ég verð að deila með ykkur.
Þannig var að maður var á ferð með félögum sínum úti í óbyggðum. Fjarlægðir hér eru mjög miklar og oft langt á milli Staðarskála. Svo eru Ástralir líka óttalegir villimenn og finnst minnsta mál að losa niðrum sig hvar sem er – hvenær sem er. Þegar náttúran kallaði á þennan félaga okkar þá vippaði hann sér út í runna og niður með brækur. Það vildi þó ekki betur til en svo að stórhættulegur, baneitraður brúnn snákur beit hann þar sem síst skyldi. Félagarnir drifu manninn til læknis sem var þó ekki mjög nálægt og því voru allir mjög áhyggjufullir. Maðurinn hringdi í móður sína og kvaddi hana grátandi. Þegar til læknisins var komið kom í ljós að þessi óheppni maður var svona stálheppinn. Snákarnir geta nefnilega víst valið hvort þeir láti eitrið fylgja þegar þeir bíta og þessi snákur var greinilega mjög góhjartaður því maðurinn lifði. Síðan þá ganga ýmsar sögur, til dæmis er sagt að snákurinn hafi séð samkeppnina og haft sig á burt.

Nú er spenningurinn að nálgast hámarkið hér á Viðarrósarstræti (Woodrose Drive). Ekki vegna EM í fótbolta heldur fara Eyrún, Þórdís, Dagur og Jóhanna að koma. Tíu dagar eru ekki langur tími. Sérstaklega ekki þegar ég þarf að byrja á verkefni – og klára það áður en þau koma. Þá verð ég líka komin í smá frí frá skólanum, þangað til ég byrja í síðustu tveimur kúrsunum í júlí og ágúst.

Hér er núna hávetur. Það verður stundum smá kalt á nóttunni þar sem einangrunin er ekki mikil í húsinu. Á daginn fer hitinn samt alltaf upp í 24-27 gráður. Við förum stundum í göngutúra á morgnanna og hefur Rósa þá verið í langerma peysum, síðbuxum og jafnvel sokkum. Svoleiðis er nú ekki brúkað hér oft. Ég á til dæmis ekki jakka, nota sokka bara þegar ég fer á bókasafnið og er aldrei í síðum buxum og langerma bolum í einu.

Það er náttúrulega mjög fyndið að vera með húfu, alla vega þegar maður er 7 mánaða. Svo er þarna mynd af okkur Arinze þar sem hann er í bómullarpeysu frá Brynju afasystur. Þegar ég var búin að setja hann í hana sagði hann bara "vá!"

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?