Lífið í Ástralíu

Þetta blogg lýsir lífi mínu frá því ég flutti til Ástralíu í mars 2005. Ég hef búið í Cobar í NSW, Cairns í QLD og nú í Mt Gambier SA. Á þessum tíma hef ég líka eignast börnin mín, Arinze og Rósu.

fimmtudagur, apríl 21, 2005

 

Þakklæti heimsins

Það eru sönn vísindi að sumt í fari barnanna skilja bara mæðurnar. Ég veit að bara mamma mín skilur mig þegar ég segi að ég heyri rósarunnanna, trén og grasið þakka fyrir sig þegar ég er búin að vökva. Mamma heyrir nefnilega í blómálfunum sem verða svo glaðir þegar hún tekur til í beðunum. Ég hef ekki enn heyrt í blómálfum, þó þeir hljóti þó að vera til hér eins og á Hvammstanga. Hins vegar er ég ekki enn búin að róta í beðunum og rífa upp arfann og grasið sem hefur villst þannig að þeir eru kannski bara að bíða eftir því. Ég ætlast ekki til að þið hin sem eruð ekki mamma mín skiljið mig og jafnvel skal ég barasta ekki mótmæla áhyggjuröddum sem gætu heyrst um geðheilsu mína. Ég hef verið efins um mömmu mína þegar hún hefur verið í vorham og talar við þá sem hún finnur fyrir en ekki sér. Ég held það þurfi hvorki heila né sál til að þakka fyrir vatn þegar úrkoma alls aprílmánaðar er 0.8 mm. Held það sé nóg að hafa einföldustu frumugerð til að láta í ljós þakklæti með unaðslegum ilmi.

Comments:
Þú ert sennilega frekar einmana þarna úti yfir daginn.... ættir kannski bara að fá þér skiptinema, hund, kött eða eitthvað svoleiðis :-)
 
jú ég viðurkenni að maður þarf að hafa fyrir því að finna sér eitthvað til dundurs. Annars vann ég í garðinum í tvo tíma í dag og naut þess alveg soldið.
 
This article is interesting and useful. Thank you for sharing. And let me share an article about health that God willing will be very useful. Thank you :)
kurti stitching design
online kurti stitching
 
Skrifa ummæli

<< Home
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?