Lífið í Ástralíu

Þetta blogg lýsir lífi mínu frá því ég flutti til Ástralíu í mars 2005. Ég hef búið í Cobar í NSW, Cairns í QLD og nú í Mt Gambier SA. Á þessum tíma hef ég líka eignast börnin mín, Arinze og Rósu.

miðvikudagur, júní 24, 2009

 
Hér í Mt Gamiber er allt bara fínt að frétta. Við erum orðin nokkuð góð í kuldanum hér og gleðjumst bara þegar það er hlýtt og sólríkt. Í Cairns vorum við evrópsku vinkonurnar sammála um að við söknuðum þess að gleðjast yfir góðu veðri því í Cairns er eiginlega alltaf gott veður.
Síðasta sunnudag fórum við í bíltúr í norðurátt. Á einum klukkutíma keyrðum við í gegnum mjög mismunandi svæði. Fyrst var mikið af grænum högum með kúm, hestum og kindum, þá fórum við í skóga en hér er mikil skógræktariðnaður. Í lokin fórum við í gegnum Coonawarra sem er frægt fyrir vínekrur. Við stoppuðum í Naracoorte og skoðuðum risa stóran helli þar sem hafa fundist ‘fossils’ af risadýrum. Ég vissi þetta ekki en fyrir um 500 000 árum voru til 3 metra háar kengúrur, Wombats á stærð við bíl og risa snákar. Arinze var hálf smeykur við að fara ofan í hellinn til að byrja með en svo var hann svo stór að það var ekkert meir. Rósa hefur yfirleitt ekki vit á að vera hrædd við neitt.
Næsta sunnudag förum við svo væntanlega eitthvert í Victoria, á eftir að plana það betur.

Krakkarnir byrja í leikskóla í næstu viku og verða tvo daga í viku eins og þegar við vorum í Cairns. Þá get ég farið að leita mér að vinnu eða einhverju öðru að gera.







Comments:
Sæl.
Ég rakst á bloggið þitt þegar ég var að grenslast fyrir um Ástralíu. Ég er búin að hafa mjög gaman af því að lesa bloggin þín og sé að lífið í Ástralíu er frábært en getur verið átakasamt að takast á við "dýrin" þar ;) Hef einnig hlegið mikið af hjálpseminni á heimilinu - sérstaklega þegar fiskurinn endaði í geymslubúrinu ;)

Ég var að velta því fyrir mér hvort ég mætti spyrja þig nokkurra spurninga um flutninginn þinn þangað út.... ég + maki ætlum að reyna flytja út til Ástralíu en við sjáum bara fjall af pappírsvinnu fyrir okkur og mikla erfiðleika að fá "inntöku" til landsins. Ég er búin að reyna fá aðstoð héðan og þaðan í þetta pappírsflóð en allir sem ég hef talað við fóru út í skóla eða fengu svona velyrði frá íbúa í Ástralíu. Þannig að við erum svona pínu stopp núna og vitum ekki alveg hvað við eigum að gera næst. Er einhver möguleiki að geta fengið smá upplýsingar frá þér??
Ef svo er þá myndi ég þyggja það með mikilli gleði og þökkum.
Ég er með emailið: soleye08@ru.is sem hægt væri að senda á mig línu.

Vonandi "heyri" ég frá þér.

Hafðu það gott.
Mbk,
Sóley
 
Hæhæ
Datt inná síðuna þína fyrir slysni en hafði gaman af, þar eru fullt af Íslendingum hér í paradís og maður er alltaf að heyra af einhverjum nýjum :)
Gleðileg Jól (þó skrýtin séu)og farsælt nýtt ár...

Kv Freysi á Gold Coast

freysibjorns@simnet.is
 
Hi, guantanamera121212
 
شركة المثالى بروكر افضل شركة تنظيف تقدم افضل الخدمات الاول فى الدمام


شركة تنظيف بالدمام
هناك الكثير من خدمات التنظيف مثل تنظيف الفلل وتنظيف المنازل وتنظيف البيوت كل هذا واكثر معا شركة المثالى بروكر لخدمات التنظيف
 
We the BRS team which stands for Background Removal Service are providing you with highly graphic design and photo editing and obviously the most popular brand identity design at your cost. Do Visit to have the view of creative ideas of designs. Creative designs do help to grab the attraction of the customers. Make your own business flourish with powerful design concept today!
 

Photo Background Editor plays a key role in removing the background of the photo. The editor needs to remain highly careful while removing the background. The service is an essential one for the online business community

 
Shadow Creation is the process to change the color of an image or video..Shadow Creation It means correcting the lighting, white color balance, red or blue color balance, so that the image looks more clear or natural
 
الروضة
نجار في عجمان
صباغ في عجمان


 
Skrifa ummæli

<< Home
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?